Sama gamla sagan. Það er löngu búið að þjófstarta jólunum og ég hálfpartin búinn að venjast þeim. Ég er hins vegar búinn að skrifa
nóg um það í gegn um tíðina. Prófin eru farin af stað og klárast eftir rúmlega viku. Jólin eru því enn nokkuð fjarri. Ég finn þó keim af jólaskapi í mér þessa dagana þrátt fyrir allt þetta. Í prófunum hef ég hlustað mikið á eitt jólalag,
Ó helga nótt, í flutningi Jussi Björling (
O helga natt, kallast það á sænsku). Það þarf víst ekki nema eitt lítið jólalag (það getur reyndar ekki verið hvaða jólalag sem er) til að veita sálarró í jólaprófunum. Reyndar hef ég verið aðeins of kærulaus í jólaprófunum en það er önnur saga.
Viðbót: Smá snjór, með sinn hvíta blæ, spillir heldur ekki fyrir.